03apríl
ég er að fara til Reykjavíkur á morgun og kem heim á mánudagin!! annars erum við að fara í fermingu hjá Huldu sem er frænka hans Tóta og veislu sem haldin er fyrir Hlyn Bróðir hans með henni, skiljiði?
Síðan er ég að fara til útlanda eftir
17 daga með mömmu og Laufey Dís, systir mommu, bróðir hennar og koninni hans, við byrjum á því að fljúga til Hollands og verðum þar í 4 daga að skoða okkur um og kíkja á staðina sem amma mín ólst upp :) eftir það fljúgum við til írlands þar sem bróðir mömmu á heima og verðum þar í aðra 4 daga síðan endar ferðin á því að fljúga yfir til London og eyða deginum þar :) ég er að deyja úr spennu :)
mér langaði bara svo ótrúlega að deila þessu með þeim fáu sem nenna að skoða síðuna mína ennþá ;) og takk fyrir það :)
05janúar
Ég ætla að byrja á því að óska öllum sem ég er ekki búin að óska gleðilegs nýs árs og takk kærlega fyrir mig á síðasta ári :)
Frá því að ég loggaði síðast í nóvember er margt búið að gerast. Laufey er búin að stækka allveg heil mikið allveg að verða átta mánaða, og það styttist óðum í það að hún fari að labba, hún er farin að babbla fullt af orðum og búin að segja 4 orð 6 með mömmu og pabba :) þau eru DUDDA, DETTA, HOPPA og nammnamm þegar hún er svöng fer það ekki fram hjá neinum, ekkert nema yndi, hún er voða dugleg að leika sér sjálf og dunda sér, hún prílar uppá mann og vill hamast mikið, hún er búin að sýna svo mikklar frammfarir á þessum mánuðum, enda er það allgjört æði :)
Það sem hefur gerst hjá mér er eikkað minna, er bara búin að vera heim og sjá um að allt yrði hreinnt og fínt fyrir jólin, var á fullu í jólaundirbúningnum að skrifa jólakort, fékk eina símhringingu um það að jólakortið væri ótrúlega flott og allt það en það vantaði bara alla stafina inní það, mér leið einsog kjána í símanum :( við Tóti fórum eina reykjavíkurferð í desember og skildum Laufey Dís eftir heima yfir helgina og gvuð það var voða erfitt, aðallega á kvöldin þegar allt stressið var búið og maður gat hugsað að maður gæti ekki knúsað litla engilinn sinn, en hún var í góðum höndum hjá ömmu sinni og afa :)
Fyrstu jólin sem FJÖLSKYLDA voru æðisleg hreinnt út sagt, held að þetta hafi verið bestu jól em ég hef upplifað, við vorum heima hjá mömmu minni og pabba um jólin og áramótin hjá tengdó ekki voru þau verri :) allveg æðislegt.
Fengum fullt af flottum gjöfum Tóti gaf mér ótrúlega flotta og góða fartölvu :) og ég gaf honum ps3, enda var hann líka glaður með það, þetta var eina sem mér datt í hug að gefa honum :)
En ég ætla að setja inn það marktækasta sem skeði á síðasta ári, eða allavegana það sem ég man :)
Janúar: Einkenndist af vinnu vinnu vinnu og mæðraskoðun
Febrúar: það sama og janúarmánuðurinn vinna og mæðraskoðun
Mars: Var frekar stór mánuður, ég vann eins mikið og ég gat en það var eikkað minna af sökum bakverkja og verkja í nárum, varð tvítug þann 22. og á þeim degi fengum við staðfest að litli bumbubúin væri pott þétt stelpa :) hætti í vinnunni minni og tók því rólega, varð veik í endan mánaðarins og var lögð inná sjúkrahúsið því ég hélt engu niðri og með mikin hita, þetta var bara gert til öryggis upp á það að ekkert mundi ské fyrir litla krúttið í bumbunni :)
Apríl: Flutti úr stiga´hlíðinni í holtabrúnina þar sem ég bý núna, Tóti gerði það að mest öllu einn með vinum sínum því ég var jú veik uppá sjúkró! Þvoði og þvoði ungbarnaföt og gerði gamla rúmið sem ég svaf í þegar ég var lítil upp, fyrir litla krúttið :) Fór á ungfrú vestfirði þar sem Svala mágkona var að keppa og stóð seig með eindæmum vel, eins og þær allar :)
Maí: Byrjaði allveg Stórkostlega :) var sett þann 5. en litla krúttið lét ekki býða eftir sér og kom þann áttunda klukkan 3:05 :) einstaklega góð og notlaleg stund sem mun alldrei gleymast.. :) mánuðurinn einkenndist aðallega á því að knúsa leitlu og vera með henni í tíma og ótíma
Júní: þann 10 fékk prinsessan nafið sitt Laufey Dís séra Gunnar skírði hana í selfosskirkju á meðal góðra vina og vandamanna :) Dvöldum í tvær góðar vikur fyrir sunnan og höfðum það kósý :)
Júlí: Byrjaði á því að minn ástkæri unnusti varð 22 ára og einmitt þann dag eignaðist ég litla frænku, (siggi bróðir eignaðist hana) Fórum stutta ferð suður og skoðuðum hana :)
Ágúst: Fórum við suður í skírn hjá litlu frænku og fékk hún nafnið Hrefna Áróra :) vorum fyrir sunnan í nokkurn tíma, fórum í okkar fyrtu samkynjargöngu og var það mög gaman fer pottþétt aftur á næsta ári :)
Tóti byrjaði að vinna aftur eftir fæðingarorlofið .
September: fjúff.. ég man ekki allveg, held að við vorum bara heima og höfðum það gott eftir allar r.v.k ferðirnar sem voru farnar um sumarið
Oktober: mmm.. gerði ég ekki neitt..!! var jú í ræktinni að hálfu leyti og borðaði hollt, það gekk sammt ekkert svo vel :( hafði það gott með dóttur minni
Nóvember: kíkti Dóri vestur á firði og við tjúttuðum smá :) voða gaman
Desember: komu jólin og undirbúningurinn fór á fullt, fórum suður að kaupa jólagjafir barnlaus :(
bestu jól sem ég hef upplifað, og Jórunn Inga varð eins árs (systir Tóta)
Þetta er allavegana það sem ég man!! þó þetta sé ekki mikið þá er þetta eikkað, held sammt að ég bloggi ekkert mikið á næstunni, nenni því ekki er að spá í því að hætta og hafa bara barnalandssíðuna ;)
en það kemur bara allt í ljós.. :)
hafið það gott, ég heyri kanski í ykkur meira ef ég nenni að blogga meira :) kv. mamman
21nóvember
það er allveg heill hellingur sem hefur gerst síðans síðast bæði með Laufey og okkur Tóta.. :) en byrjum á Laufey.. :)
Hún Laufey okkar sem er orðin 6og hálfs mánaða er farin að skríða útum öll gólf, ellta mann uppi hvert sem maður fer, inní eldús og á klóið , og svo vælir hún ef maður labbar bara frammhjá henni :) þeð er að segja ef maður segir ekkert við hana á meðan maður labbar!! síðan kemur hún ef maður segir Laufey Dís komdu :) jihh hvað þetta er allt fljótt að gerast!! hún nebblega stóð upp í rúminu sínu á föstudagin og lét eins og ekkert væri eðlilegra..!! :/ ég veit nú ekki allveg hvað mér finnst um það því núna er hún að reyna að hífa sig upp við allt sem hún nær í og skilur ekkert í því þetta sé ekki jafn sjálfsagt ogí rúminu hennar, því þar dettur hún á mjúgt svæði en ekki hart gólfið!! og svo má ekki gleyma því að hún er farin að setjast upp sjálf, gerði það í fyrsta skipti á laugardagin, þannig var nú það að ég lét hana á gólfið fyrir framan mig á magan með dót fyrir framan hana, ég fer inní þvottahús og set í eina vél kem svo fram til hennar og þá sat hún þarna bara allveg eins og engill :)
En annars er allt gott að frétta ef henni hún er voða frísk alltaf og dugleg, ég held bara að hún hafi það mjög gott þessi elska!! :)
Ekki má gleyma því að litla skuttlan er komin í sér herbergi og ég held að hún sofi mikklu betur þar, hún rumskar ekki jafn oft og hún gerði þegar hún var inni hjá okkur hún vaknar einu sinni til tvisvar á nottunni og vill þá bara fá snuðið sitt, síðan vaknar hún um 10 eða 11 til að fá sér að borða.. :) allgjör draumur hún Laufey Dís
Það er svo sem ekkert mikið að frétta af okkur Tóta.
Tóti er búin að vera á námskeiðum núna undarfarnar helgar og er orðin vélarvörður sem þýðir það að hann getur verið meira en háseti á skipi/bát. Hann getur verið skipstjóri.. :) til hamingju með það ástin mín (er sammt búin að kyssa hann og knúsa) :) hann er búin að vera í fríi vegna brælu og á meðan hann er í fríi þá hef ég gefið mér tíma í það að drulla mér í ræktina!! Er ekki nógu og sátt með það hvað ég kemst sjaldan :( er sammt búin að missa nokkur kíló síðan ég viktaði mig síðast, en það sést ekkert :(
Ég er komin í smá jólaskap, er búin að þrífa og ég þreif næstum því alla gluggana í íbúðinni til að geta byrjað að hengja upp jólaljós :) Ég er sammt ekki byrjuð að hlusta á jólalögin, en það fer að líða af því!! Er búin að taka jólamyndir af Laufey Dís til að geta sent jólakort, og ég var eins og ég veit ekki hvað á kameruna tók yfir 100 myndir og ég er ekki frá því að það hafa bara verið nokkrar sem mistókust!
En yfir í annað.. þið sem lesið þetta eru þið með stöð 2?? jesús minn almáttugur hvað þetta digital ísland er mikið sorp. Það er alltof oft sem maður er að horfa á eikkvað í tv.inu og það bara frís allt saman..!! og síðan í hádeginu þegar nágrannar eru þá stundum (oft) kemur "Lokuð Rás" ég er ekkert smá pirruð þegar það kemur fyrir!!! þoli ekki þessa nýung, held að gömlu lyklarnir hafa verið 1000 sinnum skárri!!
en jámm þetta er það helsta sem ég get sagt ykkur þessa stundina.! held að þetta sé sammt nokkuð fínt.. :) hafið það gott allir saman mamman kveður að sinni :)
08nóvember
Það eru akkurat sex mánuðir síðan að ég var uppá sjúkrahúsi að dást af mínu elskulegu barni sem er allveg dýrlegt í alla staði, ég hef ekki fundið einn einasta galla, bara kosti og framfarir á þessum sex yndislegustu mánuðum lífs míns. :) Hún er bara eins og hugur mans gerir bara það sem hún á að gera (eða svo til) og er ljúfust í ÖLLUM heiminum.
Ég get allveg sagt það að þð er bara fáránlegt hvað fæðingarorlof er stutt, hún er svo lítil og háð foreldum sínum að það svo skiljanlegt að fólk (mæður aðallega) reynir sitt allra besta að fá að vera heima eins lengi og hægt er! Eins og núna er ég í þeirri stöðu að orlofið mitt er búið og þannig séð ætti ég að fara að vinna og senda Laufey Dís til dagmömmu, ég bara get það ekki, hún er bara alltof lítil, tímin sem við fáum er bara alltof lítill, hún á eftir að ganga í gegnum svo ótrúlega mörg þroskastig sem mig langar bara ekki til að missa af, eins og t.d. að byrja að skríða, og labba, segja fyrsta orðið og svo framveigins.
Þetta er bara búin að vera það æðislegur tími að mig langar ekki að honum ljúki, þó svo maður sakni auðvitað að fara út að vinna og vera ekki bara heima allan dagin en það eru of fáir dagar sem ég hugsa svoleiðis.. :)
Ég ætla sammt sem áður að reyna að byrja ekki að vinna fyrr en eftir áramót.! semsagt í janúar :/
Annars er ekki neitt að frétta af mér, var bara að spá í jólakortin í ár.. :) þeir sem vilja fá jólakort með mynd látið mig vita hér eða senda sms í mig eða Tóta :) Ekki vera feimin..!!!

Læt fylgja eina mynd af litlu sætu Laufey Dís :) kv. mamman
08október
fjúff.. er búin að afreka það að setja inn nokkrar myndir úr 80´s partýinu góða sem var haldið á seinustu helgi.. nenni ekki að setja þær allar inn, tekur alltof langan tíma.. :(
En jámm, það er ekki mikið sem hefur skeð í mínu lífi síðan seinast, jú við hjúgin skelltum okkur á gott djamm á seinustu helgi. ég hitti ELD gamalan vin minn sem ég hef ekki séð síðan ég var 5ára eða eikkað álíka sem var jú voða gaman, töluðum allveg hellig saman :)
Ég og Laufey litla Dís erum byrjaðar að stunda sundið af kappi, hana þótti þetta ekkert mjög spes fyrst en hún er öll að koma skellt mér í sund með hana í gær og hún var mjög ánægð með það grét ekki neitt, þó að mamma hafi sett hanna 3 sinnum í kaf, hún var bara ánægð.. :) Við erum einnig að koma suður á næstu helgi, komum sammt bara tvær, Tóti segist eyða svo mikklu í R.víkinni, það á sko ekki við mig, ég spara svo mikið þar.. ;) (nibb) hann meinti örugglega þegar við förum bæði.. en það er annað mál, allavegana stefnan er tekin austur fyrir fjall og vera þar eina nótt (föstudagsnóttina) síðan ætla ég og mín kæra móðir vonandi að bruna í bæin á laugardeginum, þannig að ég get hitt ykkur stúlkur sem ég er búin að tala við og þig nottlega líka Dóri ;) stefnan er svo að senda Laufey litlu með ömmu sín aftur austur á boginn svo mamma sín geti nú fengið að tala út úr sér allt mál um kvöldið, við sínar ástkæru vinkonur sem hafa yfirgefið fjörðinn :( hlakka allveg voðalega mikið til og ein hvítvínsflaska skemmir nú ekki mikið er það nokkuð Frikka?? það er að segja ef rætist úr þessu hjá manni. Svo er það sunnudagurinn sem ég ætla ekki neitt að plana nema það að fara í nokkrar búðir og heimsóknir, svo á sunnudeiginum er það bara tannsi klukkan 9 um morguninn og bruna heim aftur.. :)
Vona að þetta verði yndisleg helgi með ykkur sem ég sakna mikið :)
En hvað um það... Ég er sko ekki búin að vera að standa mig í ræktinni að sökum HAUSVERKS... hvað er í gangi eilega, án gríns er ég búin að vera með DÚNDRANDI hausverk í 3 vikur, og á pantaðan tíma hjá almennilegum lækni á morgun og hef ég þurft að bíða eftir þeim tíma í 10 daga.. þetta er ekki eðlilegt sko.. !! það er RÚM vika og næstum 2 vikur... ég á ekki til ORÐ..!!
En ég stefni á að fara að hypja mig þegar ég er búin að fá einhvað við þessum verk.. og vonandi stend ég mig.. :) (ég hef sammt allveg farið í ræktina bara ekki jafn mikið og ég ætlaði mér)
Er búin að skrifa fullt í vefdagbókina hjá Laufey, en þeir sem eru ekk imeð lykilorðið, óheppnir, en hún er allavegana komin með fyrstu tönnina sína :) hún Guðný sundkennari fann hana.. :) mér til mikillar hamingju :) hún fór í 5mán skoðun og hún er orðin 66 cm, og 8 kíló :) svaka trukkur hér á ferð :) langar að setja eina mynd af okkur hérna með, við skulum sjá til hvort að það takist hjá mér.. :) þar til næst. með kveðju mamman

17september
Ég er búin að gera barnalandssíðu fyrir Laufey Dís og jessuss hvað það er eikkað flókið og tímafrekt, hélt að það væri mikklu betra en þessi síða en svo reyndist ekki, var eilega bara fyrir smá vonbrygðum, en þeir sem vilja lykilorð þá bara senda mér skiló og ég get afhent það eða bara sagt ykkur :) ég mun sammt örugglega ekki vera neitt ofur dugleg að uppfæra hana því ég hef bara enga þolinmæði. Þannig að ég er búin að eyða öllum myndonum hér og ætla bara hafa þær á barnalandi, sú síða verður örugglega eingöngu myndasíðan hennar, kem örugglega ekki til með að skrifa mikið þar inná.
En allavegana þeir sem ekki vita er hún byrjuð að vellta sér.. jább nú verður sko ekki aftur snúið sko, hún verður örugglega farin að skríða eftir c.a. tvo mánuði ef ég á að vera smá svartsýn :/ annars dafnar henni bara ótrúlega vel, höldum að það sé að koma tönnsla hjá henni því hún er búin að vera svo pirruð í munninum og slefar nokkra lítra á dag, en það er bara til góðs held ég bara. :)
En ég er með fréttir af mér.. :) ég arkaði niður í íþróttahús hérna í víkinni í dag og keypti mér þiggja mán. kort í ræktina á kostakjörum aðeins 12.400krónur. var eikkað ofur tilboð út septemer :) ekki slæmt það. nú þarf ég bara íþróttaskóna mína og byrja að hreyfa mig.. :) ætla vera fit og flott um jólin svo ég geti borðað allt á mig aftur hehe.. :) sorry þeir sem voru búnir að bjóða sig fram að koma með mér, mér fannst bara svo mikil bensíneiðsla að fara alltaf inná ísafjörð til að fara í stúdióið þar þar sem ég get allveg hreyft mig hér, tek bara ipotinn með mér og raula mér til skemmtunar.. :) en þið megið allveg eiða bensíninu ykkar og hreyfa ykkur hérna með mér :) haha (bara hugmynd sko) en jæja ég kveð þáí bili. Kv. mamman
05september
jæja það er nú ekki langt síðan seinast en ég ætla sammt að skrifa eikkað niður sem er búið að gerast þó svo að það sé nú ekki mikið.
Á laugardagin buðum við Tóti Elísu og Ívari í geggjaðann dinner ;) þó svo að ég segi sjálf frá, vona að þau hafi ekki verið meinnt af því. Allavegana var svínkjöt fyrir valinu með GEGGJAÐRI sveppasósu sem ég bjó til og daimkaka sem Elísa "bakaði" var í eftirétt. Svo var bara tekið vídjó um kvöldið og leigið á melltunni, mjög svo vel heppnað kvöld bara. :)
Við Tóti áttum tveggja ára sambandafmæli á sunnudagin, hann var voða góður við mig og gaf mér 15000kr gjafainneign í Hafnarbúðinni, frábært fyrir veturinn :) var rosa ánægð með það, þar sem ég er svo rosalega hugmyndarsnauð stelpa þá á ég eftir að gefa honum eikkað, ef einhverjir eru með hugmyndir þá eru þær vel þegnar.. :)
Það er ekki nóg með það, við "hjónin" ætluðum að fara fínnt út að borða á þeim merka degi, tókum okkur til og svona skemmtó, komum Laufey Dís í pössun og fórum út um 9 leytið, þá var búið að LOKA hótel Ísafirði (hvað er það eilega) þannig að við vonuðum að fernandos væri með eikkað góðgæti fyrir okkur en neinei það var bara opið fyrir pizzurnar þar, (hvað er málið) þannig að við enduðum í Hamró og fengum okkur sitthvora pizzusneiðina, svaka rómó eikkað og leigðum okkur GLATAÐA mynd, þá meina ég glataða.
umm svo er ég alltaf að bíða etir því að þessi stórkostlegi dagur renni upp, þá meina ég það að NENNA að fara í ræktina og hrista af mér meðgöngufituna. Það er EKKERT smá erfitt að byrja, ég er búin að vera hugsa um þetta undanfarna mánuði sem eru nú nokkrir talsins :( svo er afsökunin mín oftast "ég nenni ekki að fara ein" ég veit allveg að það eru margir þarna inni en það er eikkað sem stoppar mig, mundi vel þiggja félagsskap ef eikker nennir að koma með mér :)
En af öðru.. Laufey Dís er að fara í viktun á morgun, hún er örugglega orðin 7,5 kíló get eilega bara ekki trúað öðru, hún hefur stækkað svo svakalega mikið og er orðin geggjuð bolla. Bara sætt. :) Hún borðar grautinn sinn á hverju kvöldi og finnst hann mjög góður (ef marka má hljóðin sem koma frá henni, mmmm) híhí ogisslega falleg hljóð :)
En allavegana ætla ég ekki að hafa þetta lengra í bili hafi þið það gott. kv. mamman
26ágúst
það eru komnar inn nýjar myndir í safnið. Af sætustu stelponum :)
Ég krefst þess að fólk kommennti núna. kv. mamman :)
p.s. ný könnun
22ágúst
Vá það er sko langt síðan síðast. Og það hefur örugglega margt skeð frá því.
Ég keyrði suður til R.V.K með Guðjóni bróðir um versló í skírn hjá henni litlu frænku minni sem heitir núna Hrefna Áróra og er Sigurðardóttir, Siggi er semsagt elsti albróðir minn. :) kíkti smá á djammið með Örnu M og Ingu Rut en kom snemma heim því það var sko ekkert gaman fannst mér.
Litla fjölskyldan fór í 1. skipti í gaypridegöngun og var það bara ótrúlega flott.. páll óskar var númer 1.2.og3 held ég bara, ekkert smá flottur.. :) flott veður og góð stemmning.
Ég fór á útsölurnar og misssti mig heeeeldur mikið. það var allt svo ótrúlega flott á mig og stelpuna að ég var slefandi út úr hverri búðinni :( ekki gott
En svo er það bara gangur lífsins að vakna með stelpunni á mornana, það er bara verst hvað meður er alltaf gegt þreyttur að maður vill helst bara hafa svona klick takka svo hún sofi bara áfram.. hehe en það lagast þegar maður er loksins komin á fætur. Laufey fór í 1. sprautuna sína og það gekk svo ótrúlega vel að ég átti bara ekki til ORÐ.. hún grét ekki einu sinni, setti á sig skeifu og svo allt búið.. fyrirmyndar barn sem ég á. :) hún er líka orðin 6,5 kíló ekkert smá þung og 62cm voða löng eikkað en það er kanski bara eðlilegt held ég bara.. :) svo líka.. hún er farin að hlæja hahaha það er svo ÓTRÚLEGA sætt að maður bráðnar alveg niður, hún fékk í fyrsta skiptið núna í kvöld maísgraut, og hún var ekki allveg viss hvort hún ætti að spíta honum útúr sér eða bara kingja honum.. en hún valdi réttu leiðina litla matargatið og borðaði hann með bestu list.. :) það er nebblega svo gaman að sjá hvernig þau breytast dag frá degi.. verð að fara að setja inn fleiri myndir, geri það um leið og ég nenni því.. :/
Svo er það hann Tóti minn hann er byrjaður á sjónum aftur, með von um að hann þjéni bara nóg og mikið svo ég þurfi ekki að hafa áhyggjur þegar mitt fæðingarorlof er búið. En það er svo langt þangað til að ég nenni ekki að pæla í því meira.. :) umm ég hef bara EKKERT meira að segja það gerist voða lítið hérna hjá mér, það eru allir fluttir eða að flytja svo ég og Elísa málum bara bæjinn rauðan í vetur og meikum það, er það ekki annars? haha
en jamm þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra, vona að þið hafið nennt að lesa þetta. Ég býð bara góða nótt og sjáumst vonandi fljótt. K.v Mamman ;)
01ágúst
sælt verið fólkið, það hefur ekki mergt skéð frá því síðast.
ég skundaði á djammið á laugardagin og var það bara ÓTRÚLEGA gaman.. :) byrjaði á þvi að fara í 20. afmæli til Kristjönu og var þar til hálf 11. kem heim að sinna minni ástkæru dóttur því hún var ekki að samþykkja ömmu sína og afa, HARÐ neitaði þeim allveg hreinnt, bara grét og grét, og þar hélt ég bara að mín von væri búin að fá að kíkja aðeins í bæinn, en ástkæra dóttir mín hún Laufey Dís gafst upp og sofnaði heima hjá sér um miðnætti :) þannig að ég náði að fara í smá kveðjupartý hjá henni Söndru og skellti í mig einni hvítvínsflösku og varð bara kát á því.. :)
umm ég var að skoða stjörnuspána mína, og hún hljómar svona
Þú ættir að hætta að réttlæta langanir þínar og hefjast handa þegar draumar þínir eru annars vegar. Hugaðu vel að hjarta þínu og minntu þig stöðugt á hæfileika þína hvern dag og að hve miklu leyti þig langar í raun og veru að efla eigin tilveru. Opnaðu huga þinn fyrir smáatriðum líðandi stundar og sýndu stillingu og þolinmæði. Stjörnu hrútsins er einnig ráðlagt að hætta að reyna að ná stjórn yfir náunganum.
oki... ég á MARGA drauma sem mér dauðlangar að rætast, en það er alltaf en, það er ALLT svo DÝRT... þannig að maður hefur ekki efni á því.. :( kanski maður reyni bara að safna sér smá moníngum og bara drýfa í því sem manni langar að gera...!!
Ég veit EKKERT hverjir hæfileikar mínir eru, þeir geta allavegna ekki verið margir þar sem ég er ekki búin að uppgvöta neinn einasta hæfileika. kanski veit einhver um hann og getur sagt mér.. ;)
jább ég er MÖG óþolinmóð sem ég er að reyna að bæta :)
og ég veit ekki allveg með þetta síðasta að hætta að reyna að hafa stjórn yfir náunganum... er ekki fínnt að vera smá stjórnsamur..?? og er ekki eitt að leiðbeina og fara eftir manni heldur en að skipa fyrir... jæja hver veit. ég tel mig allavegana ekki stjórnsama...
en litli gullmolinn er að gráta og mig langar að fara að hugga hana því hún er svo SÆÆÆT :)
ooog ég vil kommennt á línuna takk :) kv. mamman